Ég biðst innilegrar afsökunar á þessu bloggleysi sem hefur hrjáð mig síðustu vikur. Það er bara ekki sniðugt hvað mér dettur bara alls ekki neitt í hug til að skrifa. Það er kannski ekki heppilegast að ég sé að vinna á auglýsingastofu þar sem hugmyndirnar þurfa að hellast yfir mann á degi hverjum eins og Reykvísk rigning
En ég vill samt þakka þeim örfáu sem sjá sér ennþá fært að mæta hingað inn á þessa síðu daglega í von um nýtt blogg 
En nú lofa ég að það verður breyting á og er stefnan sett á að minnsta kosti 3 blogg í mánuði..... össss.... það er bara pressa mar. En hvað um það nú er komið nóg um blogg hérna á blogginu 
Man. utd. unnu frækilegan sigur á Sporting mönnum í Meistaradeildinni núna rétt í þessu. Sigurmarkið átti hinn snoppufríði Ronaldo beint úr aukaspyrnu. Stórglæsilegt mark það. En var alls ekki ánægður þegar ég sá að helvítis UEFA síðan hafði klúðrað því að skipta Ronaldo inná fyrir meiddann Rooney eins og ég gerði í dag en hún krassaði alltaf þegar ég staðfesti skiptingar. Var kominn með kallinn sem fyrirliða og ég veit ekki hvað... Hefði þá fengið sirka 18 stig fyrir kappann. Sem hefði nú bara verið ágætt sérstaklega af því að Arsenal og Barcelona menn skitu á sig.
Það er alveg magnað hvað undanfarnir mánuðir hafa liðið ótrúlega hratt. Finnst sumarið rétt vera búið og það eru bara að koma jól. Það eru ekki nema 27 dagar til jóla og fríið verður ekki af verri endanum þessi jólin því þau hitta einstaklega vel inn á dagatalið. Sem er náttúrulega bara gott mál því þá fær maður enn meiri tíma til að troða sig út af svínakjöti, hangikjöti og lifandis ósköpum af Macintoshi sem allir virðast kaupa nokkur bretti af fyrir jólin.